Um Maríönnu

Söngkona og tónlistarkennari frá Rangárvöllum

Maríanna Másdóttir er söngkona og þverflautuleikari sem hefur starfað við tónlist í yfir 25 ár. Hún er fædd og uppalin á Suðurlandi og hefur alla tíð verið virk í tónlistarlífi héraðsins.

Hún er tónlistarkennari við Tónlistarskóla Rangæinga þar sem hún hefur kennt söng og þverflautu síðustu 25 ár. Nemendur hennar hafa hlotið margvísleg verðlaun á tónlistarkeppnum.

Árið 2015 gaf hún út sólóplötuna Aldrei ein sem finnst á Spotify og flestum öðrum streymisveitum. Platan hlaut góðar viðtökur og lög af henni hafa verið spiluð í útvarp og sjónvarp.

Mynd: Sigurjón Ragnar